HÚÐ.is
Um okkurHvernig virkar þjónustanEyðublöðFræðsluefni
Um okkurHvernig virkar þjónustanEyðublöðFræðsluefni

Skilmálar þjónustunnar

Síðast uppfært 6. september 2026

Þessir skilmálar gilda um rafræna þjónustu HÚÐ.is. Með því að senda inn erindi samþykkir þú skilmálana. Lestu þá áður en þú hefur ráðgjöf.

Þjónustan er ekki fyrir bráðatilvik

Rafræn ráðgjöf hentar ekki þegar bregðast þarf strax við. Ef um bráðatilvik er að ræða skal hringja í 112 eða leita á bráðamóttöku. Utan dagvinnutíma má hafa samband við Læknavaktina í síma 1700.

Um þjónustuna

Í gegnum vefsíðuna getur þú annars vegar sent inn upplýsingar fyrir bókaðan tíma og hins vegar óskað eftir rafrænni ráðgjöf eða endurkomu hjá húð- og kynsjúkdómalækni. Nánari lýsing er á síðunni Hvernig virkar þjónustan.

Þjónustan byggir á þeim upplýsingum og myndum sem þú sendir inn. Hún kemur ekki í stað skoðunar þegar slíkrar er þörf.

Skilyrði fyrir notkun

Til að nota þjónustuna þarft þú að geta auðkennt þig með rafrænum skilríkjum.

TODO Taka fram aldursmörk og hvernig fara skal með erindi fyrir börn eða aðra sem forráðamaður/umboðsmaður sendir inn fyrir.

Ábyrgð þín

  • Að veita réttar og fullnægjandi upplýsingar um einkenni, heilsufar og lyf.
  • Að senda inn skýrar myndir þegar eftir þeim er kallað, enda eru þær grunnur að matinu.
  • Að fylgjast með svörum í Heilsuveru og bregðast við leiðbeiningum sem þar berast.
  • Að leita annarrar aðstoðar ef einkenni versna á meðan beðið er eftir svari.

Ófullnægjandi upplýsingar geta orðið til þess að ekki reynist unnt að veita ráðgjöf rafrænt.

Þegar erindið hentar ekki rafrænu mati

Læknir metur hvort unnt sé að afgreiða erindið rafrænt. Krefjist það nákvæmari skoðunar eða frekari rannsókna er send tímabókun. Ef tímasetning hentar ekki má hafa samband við ritara Heilsuklasans í síma 599 1600 eða senda póst á mottaka@heilsuklasinn.is.

Verð og greiðsla

Greiðsla fyrir rafræna þjónustu er sú sama og þegar þjónusta er veitt á stofu læknis, 21,5 einingar. Ekki hefur verið gerður samningur við Sjúkratryggingar Íslands um niðurgreiðslu hennar og greiðsla er innheimt eftir að skilmálar eru samþykktir.

Greiðsla fyrir einfalda rafræna endurkomu vegna sama erindis, 12 einingar, fellur undir greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga, sem og endurnýjun lyfseðla sem áður hefur verið ávísað og krefjast ekki frekara mats. Sé um nýjan sjúkdóm að ræða þarf að bóka rafræna þjónustu að nýju.

Fyrir flóknari rafrænar endurkomur getur komið til aukagjald samkvæmt samningi við Sjúkratryggingar, eða endurkoman verið undanskilin samningi. Upplýsingar um kostnað liggja fyrir áður en þjónustan er veitt og samþykkt.

TODO Tilgreina hvort og hvernig unnt er að falla frá erindi eftir greiðslu og hvernig endurgreiðslu er háttað.

Svartími

TODO Tilgreina innan hvaða tíma svara má vænta og hvað gildir um helgar og frídaga.

Réttindi þín

Réttindi þeirra sem fá þjónustu rafrænt eru þau sömu og þeirra sem mæta í bókaðan tíma. Öll sérfræðiþjónusta lækna á Íslandi er undir eftirliti Embættis landlæknis.

Persónuvernd

Um meðferð persónuupplýsinga fer samkvæmt persónuverndarstefnu þjónustunnar.

Kvartanir

Ábendingum og kvörtunum má koma á framfæri á mottaka@heilsuklasinn.is. Einnig er unnt að beina kvörtun til Embættis landlæknis.

Lög og breytingar

Um skilmálana gilda íslensk lög. Skilmálarnir geta tekið breytingum og er dagsetning síðustu uppfærslu efst á síðunni.

HÚÐ.is

Rafræn þjónusta - markviss samskipti

Tenglar

Um okkurEyðublöðFræðsluefniPersónuverndSkilmálar

Hafðu samband

mottaka@heilsuklasinn.is+354 599 1600

Bíldshöfði 9, 110 Reykjavík

© 2026 HÚÐ.is

Allur réttur áskilinn