Hvernig virkar þjónustan?
Ef þú átt bókaðan tíma smellir þú á hlekkinn „Bókaður tími“ og forritið leiðir þig áfram. Svara þarf spurningum og senda má inn myndir sem geta í mörgum tilvikum gert þjónustuna markvissari. Í vissum tilvikum fær skjólstæðingur upplýsingar um mismunandi meðferðarkosti og fræðslu senda til umhugsunar fyrir áætlaðan tíma sem getur dregið úr þörf á endurkomu.
Ef þú óskar eftir ráðgjöf eða rafrænni endurkomu skaltu smella á „Rafræn ráðgjöf“ og forritið leiðir þig áfram. Svara þarf spurningum og senda inn myndir sem eru grunnur að rafrænni læknaþjónustu.
Svar berst í Heilsuveru og lyfseðlar sendir í lyfjagátt.
Ef erindið krefst að auki nákvæmari skoðunar og/eða frekari rannsókna er í framhaldinu send tímabókun. Ef tímasetningin hentar ekki skal hafa samband við ritara Heilsuklasans í síma 599 1600 eða senda póst á netfangið mottaka@heilsuklasinn.is.
Réttindi þeirra sem fá þjónustu rafrænt eru þau sömu og þeirra sem mæta í bókaðan tíma.
Öll meðferð persónuupplýsinga er örugg og í samræmi við persónuverndarlög.