Elísabet Reykdal Jóhannesdóttir

Húð- og kynsjúkdómalæknir

Stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík, útskrifaðist frá læknadeild Háskóla Íslands vorið 1997 og fékk sérfræðileyfi sem húð- og kynsjúkdómalæknir frá Svíþjóð 2008.

Elísabet hefur rekið eigin læknastofu frá því hún flutti heim frá Svíþjóð árið 2009. Hún hefur einnig unnið á einkareknum húðlæknastöðum í Malmö og Stokkhólmi til að sækja sér innblástur hjá stærri þjóðum.

Elísabet vann samhliða eigin rekstri sem sérfræðingur á Landspítala, göngudeild húð- og kynsjúkdóma frá janúar 2012 til haustsins 2025, þar af gegndi hún stöðu yfirlæknis frá árinu 2018 til starfsloka. Á Landspítala beitti Elísabet sér fyrir nýsköpun, teymisvinnu og hagræðingu og síðast en ekki síst fyrir því að stuðla að öryggi og bættri þjónustu við skjólstæðinga deildarinnar.

Sem dæmi um störf hennar á Landspítala má nefna sú nýbreytni að mögulegt varð að bóka skimun og rannsóknir vegna kynsjúkdóma á netinu, þátttaka í nefnd á vegnum heilbrigðisráðherra um aðgerðir gegn aukningu kynsjúkdóma Kynsjúkdómar á Íslandi - greinargerð og tillögur um aðgerðir. Í framhaldi af þessari vinnu voru leiðbeiningar kynsjúkdómadeildarinnarar, sem höfðu verið í smíðum, yfirfarnar af hópi sérfræðinga og birtar sem klínískar leiðbeiningar á síðu Embætti Landlæknis Leiðbeiningar um meðferð kynsjúkdóma. Einnig skrifaði hún fræðsluefni um algenga kynsjúkdóma sem birt var í gæðahandbók Landspítala, Húð- og kynsjúkdómadeild - Fræðsluefni og upplýsingar | Landspítali.

Á Landspítala stofnaði Elísabet, árið 2017 ásamt Gunnari Bjarna Ragnarssyni og Þóri Njálssyni, sortuæxlisteymi Landspítalans en þau skrifuðu meðal annars leiðbeiningar sem birtar voru á heimasíðu Landlæknis. Elísabet hefur síðan þá, ásamt öðrum sérfræðingum sem síðar bættust í hópinn, beitt sér fyrir aukinni þjónustu og gæðum meðferðar við sortuæxli í húð á Íslandi Sortuæxli klinískar leidbeiningar. Elísabet hefur lagt mikla áherslu á aukna fræðslu og vitundavakningu um flöguþekjakrabbamein í húð. Hún hefur jafnframt stuðlað að innleiðingu og auknu aðgengi að meðferðarúrræðum á borð við PDT (photodynamic therapy) ljóshrifameðferð og skrifað leiðbeiningar um svæðismeðferðir forstigsbreytinga í gæðahandbók Landspítala Efudix.

Elísabet fékk veglegan styrk frá kvennfélaginu Hringnum og kom af stað lasermeðferðum barna í svæfingu á Landspítala.

Hún beitti sér einnig fyrir notkun nýrra lyfja við blettaskalla en árið 2018 fengu fyrstu sjúklingarnir meðferð Leiðbeiningar um meðferð með JAK hemlum við blettaskalla.

Hún beitti sér fyrir klínískri kennslu, afköstum, hagræðingu og möguleika á því að stunda rannsóknir á göngudeild húð- og kynsjúkdóma. Var um árabil stundakennari við HÍ og tekið þátt í sérnámskennslu á LSH og Heilsugæslunni auk þess að hafa verið meðleiðbeinandi í BS verkefnum.

Elísabet var um árabil í stjórn Félags íslenskra húðlækna, þar af nokkur ár formaður. Elísabet hefur setið í stjórn NDA Nordic Dermatology Association, Lýðheilsuráði og er í sóttvarnaráði frá árinu 2014.

Aðrir starfsmenn

  • Jóhannes Reykdal Einarsson

    Jóhannes Reykdal Einarsson

    Tölvunarfræðingur

    Jóhannes Reykdal útskrifaðist árið 2025 með BSs í Stærðfræði frá Háskóla Íslands, og árið 2026 með BSc í Tölvunarfræði frá Háskóla Íslands. Stundar nú nám í hagnýttri stærðfræði við Imperial College London.

  • Jóna Björk Einarsdóttir

    Jóna Björk Einarsdóttir

    Læknanemi

    Jóna Björk útskrifaðist árið 2025 með BSs í Læknisfræði frá Háskóla Íslands og mun ljúka Kandídatsprófi í læknisfræði vorið 2029. Jóna Björk hefur unnið sem aðstoðarlæknir á læknastofu Elísabetar, ...